04.11.2014
Þá er búið að draga í næstu umferð kvenna og karla í Poweradebikarnum. Fengu bæði liðin okkar heimaleik. Stelpurnar fá óvæntan sjaldséðan fugl á sinn gamla heimavöll en dróust þær gegn KR stúlkum með Helgu "okkar" Einarsdóttir fremsta í flokki. Strákarnir drógust gegn Grindavík og má því segja að körfuboltaveislan ætli bara enga endi að taka. Leikdagar fyrir þessa leiki verða 5-7 des. Áfram Tindastóll.