Ingvi Rafn framlengir við Tindastól

Ingvi Rafn og stjórn kkd Tindastóls hafa komist að samkomulagi um að Ingvi leiki áfram með liðinu  út leiktímabilið 2014-2015. Er mikil ánægja með það að Ingvi sé búinn að framlengja samning sinn við félagið. Hefur Ingvi sko sannanlega sýnt það í vetur að hann er sko klárlega leikmaður framtíðarinnar og hefur bætt sig gríðalega í vetur og verið til mikillar fyrirmyndar. Stjórn kkd óskar Ingva að sjálfsögðu til hamingju með daginn og samninginn. Áfram Tindastóll.