- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Dúfa Dröfn er fædd árið 1982 og æfði og lék fótbolta með Tindastóli á sínum yngri árum. Hún er íþróttakennari að mennt og með UEFA-A þjálfaragráðu.
Dúfa hefur þjálfað mikið á suðvestur horni landsins og hefur verið eftirsótt sem þjálfari bæði hér á landi og erlendis.
Hlutverk knattspyrnustjóra er fjölbreytt en m.a. mun hún þjálfa nokkra flokka og hafa umsjón með og bera ábyrgð á faglegu og skipulagningu starfsins.
Einnig mun Dúfa halda utan um foreldrastarf og aðkomu foreldra ásamt því að halda utan um heimasíðu yngri flokkanna.
Dúfa er boðin velkomin til starfa.