- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Margrét Rún Stefánsdóttir hefur verið valin til að taka þátt í úrtaksæfingum U17 ára landsliðs kvenna.
Æfingarnar fara fram í Skessunni í Hafnafirði og á Kópavogsvelli dagana 17. til 19. ferbrúar undir stjórn Magnúsar Arnar Helgasonar þjálfara U17 kvk.
Þessar úrtaks æfingar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðla EM 2022. Ísland er þar í riðli með Írlandi, Slóvakíu og Finnlandi og verður leikið á írlandi 23.-29. mars.
Margrét, sem er markmaður, á að baki 3 meistaraflokks leiki með Tindastól og 3 leiki með yngri landsliðum Íslands.