- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Knattspyrnudeild Tindastóls hefur samið við franska framherjann Yves Ngassaki um að leika með liðinu á komandi tímabili.
Yves er fæddur árið 1996 og lék með yngri liðum Cheltenham Town á Englandi. Undanfarin ár hefur hann leikið í Kanada með liðinu CMS Oissel og nú síðast með knattspyrnuliði Sherbrooke-háskólans í sama landi.
"Yves er stór, sterkur og fljótur framherji sem á eftir að nýtast okkar liði alveg frábærlega. Við ætlumst til mikils af honum i sumar og væntum þess að okkar frábæra samfélag taki vel á móti honum þegar hann mætir á svæðið í apríl," segir Donni þjálfari meistaraflokka Tindastóls í knattspyrnu.