- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Það viðraði vel
til knattspyrnuiðkunar á JÁVERK-vellinum á Selfossi í dag þegar Selfoss tók á
móti Tindastól í 1. deild karla.
Selfoss sótti hart
og vel allt frá 1. mínútu og voru nokkru sinnum nærri því að komast yfir.
Tindastóll átti mjög fáar sóknir á móti og voru ekki líklegir framan af.
Heimamenn voru
mikið að vinna með háa bolta inn í teig og áttu nokkra fína skalla en tókst
ekki að koma boltanum í mark fyrr en að Guðmundur Ársæll, dómari leiksins,
dæmdi vítaspyrnu á Tindastól þar sem varnarmaður Tindastóls braut klaufalega á
í sínum eigin teig. Luka Jagacic fór á punktinn og lagði boltann örugglega í
markið.
Tindastóll tók
aðeins við sér eftir markið og áttu nokkrar fínar sóknir og var Ívar Guðlaugur
Ívarsson áberandi góður að mati undirritaðar, fyrir Tindastóls. Allt kom þó
fyrir ekki og var staðan 1-0 í hálfleik.
Tindastóll komu
mjög sterkir inn í seinni hálfleik og voru líklegri til að skora en heimamenn
fyrstu 5-10 mínúturnar. Það var hins vegar á 58. mínútu sem Loftur Páll
Eiríksson fékk sitt annað gula spjald og þar af leiðandi rautt fyrir brot rétt
fyrir utan teig. Selfoss skellti þá í mjög vel útfærða aukaspyrnu sem Þorsteinn
Daníel Þorsteinsson skoraði úr.
Gestirnir urðu
frekar bitlausir eftir að lenda manni færri og nýttu heimamenn sér það með
mörgum fínum sóknum. Bæði lið sóttu framan af en það var ekki fyrr en á 81.
mínútu sem þriðja markið kom. Þar var Þorsteinn aftur á ferð þar sem hann
skoraði laglegt mark beint úr aukaspyrnu.
Fátt markvert
gerðist það sem eftir lifði leiks og endaði leikurinn því 3-0 og Selfoss þar af
leiðandi komið með 7 stig á tímabilinu á meðan Tindastóll er á botni
deildarinnar með 2 stig.
Frétt frá Fótbolta.net.