- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Tindastólsstúlkur
mættur ÍR á Hertz vellinum við kjöraðstæður miðvikudaginn 3. júlí. Má segja að
leikurinn hafi byrjað fjörlega því strax á 3. mínútu vann vörn Tindastóls
boltann og sendi á Leslie sem kom boltanum á Carolyn sem labbaði í gengum vörn
ÍR og skoraði af öryggi. Á 12 mínútum
síðar unnu stólarnir boltann á miðjunni og Guðný átti góða stungusendingu á
Leslie sem renndi boltanum framhjá markmanninum og í netið. Staðan orðin 2-0
fyrir Tindastól eftir 15 mínútur. Skömmu
eftir annað markið slapp Rakel Hinriks í gegnum vörn ÍR en lét markmanninn
verja frá sér. ÍR áttu sín færi og komust framherjar þeirra tvisvar í gegnum
vörn Tindastóls í fyrri hálfleik en Bryndís var vandanum vaxin í markinu og
bjargaði með glæsilegum úthlaupum. Á 35 mínútu fékk Tindastóll aukaspyrnu á
miðjum vallarhelmingi ÍR og lenti boltinn hjá Hugrúnu sem sendi á Leslíe sem
átti skot að marki og boltinn lak í gegnum hendur markmanns ÍR og fór Tindastóll
inní hálfleikinn með 3-0 forystu. Fyrri hálfleikurinnn var aðeins jafnari en
tölurnar segja en í síðari hálfleik var bara eitt lið á vellinum og það var
Tindastóll. Á 54. mínútu hreinsar Sunna fram og Leslie fylgdi vel á eftir og
smeigði sér á milli varnar og markmanns og vippaði boltanum yfir markmanninn
sem var í úthlaupi og lagði boltann síðan snyrtilega í netið, frábær boltatækni
sem Leslie sýndi í þessu marki. Skömmu áður átti Leslíe þrumuskot í stöng. Á 64 mínútu vann Carolyn boltann á miðjum
vallarhelmingi ÍR og lék á fjóra ÍR-inga
áður en hún þrumaði boltanum í netið. Tveimur mínutum síðar vann Rakel Svala
markspyrnu sendi á Guðnýju sem stakk boltanum á Leslie sem lék á markmanninn og
skoraði 6. mark Tindastóls og 4. markið sitt. Í síðari hálfleik léku
Tindastólsstúlkur við hvern sinn fingur og áttu ÍR-ingar engin svör við leik
þeirra og lönduðu öruggum sigri, sex mörk gegn engu. Í síðari hálfleik gerðist
skodið atvik þar sem Tindastóll spilaði manni færri í 3 mínútur og enginn
línuvörður var á vallarhelmingi Tindastóls þar sem línuvörðurinn réði ekki við
skiptingahraða Gauja og lenti í vandræðum við að koma bókhaldninu saman, en
áttaði sig að lokum að Tindstóll væri manni færri og leyfði Brynhildi að fara
inná. En það sem kom mest á óvart í þessu var að dómaratríóið skyldi ekki
stoppa leikinn á meðan skiptingarnar kæmust á hreint. Byrjunarlið Tindastóls, Bryndís Rut (Kristín
83), Sunna, Svava, Fríða, Snæja (Brynhildur 80), Rakel Svala, Rakel
Hinriks.(Bryndís Rún), Carolyn, Hugrún (Laufey 63) Guðný og Leslie (Hildur 80).