- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Lengsta undirbúningstímabil heims er líklega í knattspyrnunni á Íslandi. Eftir fimm mánaða keppnistímabil kemur stutt frí og síðan hefst undirbúningurinn fyrir það næsta í nóvember. Að loknu tímabili 2011 var ljóst að samstarf Tindastóls/Hvatar yrði ekki haldið áfram og því var það Tindastóll sem tók keflið og það verkefni að leika í 1.deild.
Fyrsta verkefnið var að ganga frá ráðningu Halldórs Jóns
Sigurðssonar ( Donna ) sem þjálfara og síðan þurfti að móta leikmannahópinn og
ganga frá samningamálum leikmanna. Ljóst
var að Gísli Eyland markmaður til fjölda ára myndi hætta og einnig að Bjarki
Már Árnason ætlaði sér ekki að spila með Tindastóli.
Lengjubikarinn hófst um miðjan febrúar og spilaði liðið í
A-riðli með stórum liðum eins og Stjörnunni og ÍBV. Gengi liðsins var frekar slappt og endaði
liðið í neðsta sæti riðilsins með 1.stig og markatöluna -25. Eftir þetta mót þá fóru sparkspekingar á stjá
og liðinu var í öllum fjölmiðlum spáð neðsta sæti í 1.deild og átti ekki að
eiga möguleika á að vinna leik. Kannski
helst að liðið ætti að getað unnið Hött, hina nýliðina í deildinni.
Spá fotbolta.net má sjá hér:
Tindastóll styrkti sig eftir Lengjubikarinn og til liðsins
komu fjórir Englendingar og einn Haítibúi. Margra mánaða vinna lá að baki því að fá þessa
menn til landsins og töldu þeir sem stóðu að því að um að sterka leikmenn væri
að ræða, þó svo að aldrei sé hægt að vita fyrir víst hvaða sendingu liðið fær.
Íslandsmótið hófst 12.maí 2012 þegar liðið fór á Ásvelli og mátti lúta í gras fyrir Haukum sem spáð var að færi upp í Pepsideild. Leikurinn var vel leikinn af hálfu Tindastóls og var liðið að spila betur en menn bjuggust við í fyrsta leik. Bikarleikur kom síðan í kjölfarið þar sem andstæðingarnir voru Dalvík/Reynir. Færa þurfti leikinn inn í Bogann útaf vorhretrinu sem kemur ávallt um miðjan maí og setti velli á landsbyggðinni á kaf í snjó. Bikarleikurinn tapaðist og er orðið ansi langt síðan Tindastóll hefur komist eitthvað áfram í bikarkeppninni.
Fyrsti heimaleikurinn var gegn Víking Ólafsvík og tapaðist sá leikur 1-0. Fyrsti sigurinn kom síðan á Ísafirði í bráðfjörugum leik sem endaði 5-2 fyrir okkur. Theo Furness skoraði þrennu í þeim leik.
Júlímánuður gekk í garð og Tindastólsliðið rétt fyrir neðan
miðja deild en í þéttum pakka þar sem deildin var óvenju jöfn. Mánuðurinn byrjaði vel en Hattarmenn komu í
heimsókn og var þeim slátrað á Sauðárkróksvelli. 6-2 urðu lokatölurnar og áhugi
kominn á landsvísu á liðinu. Næstir í
heimsókn voru Þróttarar en með þeim í för voru útsendarar og þjálfarar annars
hvers liðs í Pepsi-deildinni. Leikurinn
vannst 3-1 þar sem Ben Everson, Max Touloute og Fannar Örn skoruðu mörkin. Félagaskiptaglugginn hafði opnað tveim dögum
fyrir þennan leik og peningamaskínan frá Akranesi og á höfuðborgarsvæðinu fór
af stað og bauð þeim Theo Furness og Ben Everson gull og græna skóga ef þeir
kæmu suður. Stóra samningsmálið fór síðan
þannig að Theo fór á Skagann og Ben Everson til Breiðabliks. Tindastóll hafði ekki bolmagn til að bjóða
þessum leikmönnum það sem þeim var boðið og því fór sem fór. Útsendarar Tindastóls fóru strax á stúfana og
voru ekki lengi að ná hingað til landsins þrem leikmönnum. Steven Beattie kom
hingað ásamt Colin Helmrich og “floppinu” Conor Killeen. Conor spilaði einungis
45 mín. fyrir Tindastól og fór síðan aftur til síns heima. Hinir tveir stóðu sig mjög vel með liðinu og
smullu vel inn í hópinn.
2-1 þar sem Steven Beattie skoraði bæði mörk okkar manna. Liðið komið með 24 stig á þessum tímapunkti og
sæti í deildinni nánast gulltryggt. Næsti
leikur var útileikur gegn Hetti og með stígi yrði sæti í 1.deild að ári okkar. Strákarnir spiluðu glimarandi leik og unnu 3-2
þar sem Colin, Atli og Benni skoruðu mörk okkar manna. 27 stig í hús og hefur Tindastóll aldrei áður
náð í jafn mörg stig í 1.deild. Metið
var 23 stig árið 1988 en þá voru spilaðir 18 leikir svo samanburðurinn kannski
ekki alveg sanngjarn.
Lokahóf knattspyrnudeildar Tindastóls var síðan um kvöldið í Miðgarði þar sem Edvard Börkur Óttharsson var kosinn besti leikmaður liðsins en frammistaða hans í vörninni var frábær. Strákurinn spilaði með grímu síðustu tvo mánuði mótsins þar sem hann kinnbeinsbrotnaði á móti Víkíng Ólafsvík, en lét það ekki á sig fá og uppskar laun erfiðisins.
Tölfræði tímabilsins var ágæt. Liðið skoraði 34 mörk en einungis þrjú lið skoruðu meira. Liðið fékk hinsvegar á sig 42 mörk sem er næst mest í deildinni. Leikir Tindastóls voru frábær skemmtun í sumar, nóg af mörkum í leik liðsins og oftast flottur bolti. Markahæsti leikmaður liðsins þetta árið var Ben Everson með 7 mörk í aðeins 10 leikjum. Næstur var Theo Furness með 6 mörk í 9 leikjum. Max skoraði 6 mörk einnig og Steven Beattie með fjögur. Colin var einnig mjög lunkinn í markaskorun en hann skoraði 3 mörk í 9 leikjum. Markahæsti íslendingurinn var yngsti sonur Ödda læknis hann Atli, en hann skoraði 3 mörk í 22 leikjum. Atli var einnig leikjahæsti leikmaður liðsins í sumar og spilaði alla leiki liðsins. Næstir komu Böddi, Eddi og Árni Arnars. með 20 leiki.
Eins og fyrr segir þá er frábæru tímabili lokið hjá flottum og frábærum strákum sem við eigum í fótboltanum. Þeir eru góðar fyrirmyndir sem nauðsynlegt er að hafa í hverju Sveitarfélagi. Nú fer fljótlega undirbúningur að hefjast fyrir næsta tímabil og verður gaman að sjá liðið reyna sig á öðru ári í deildinni. Einhver sérfræðingurinn sagði að annað tímabilið væri ávallt erfiðara en það fyrsta og verður því gaman að sjá hvort strákarnir nái að sanna að þetta tímabil var engin heppni og bæti sig enn frekar.
Takk fyrir skemmtilegt tímabil
Stefán Arnar Ómarsson
Formaður meistaraflokksráðs karla.
Hægt er að sjá 20.mín myndband af tímabilinu í hnotskurn með
því að smella á hér.