Frjálsíþróttadeild ÍR hélt sína árlegu Silfurleika ÍR í Laugardalshöllinni í Reykjavík laugardaginn 17. nóvember. Metþátttaka var á mótinu að þessu sinni, skráðir keppendur voru 666 talsins og í mörgum greinum voru keppendur á bilinu 40-60 talsins. Skagfirðingar sem kepptu voru 13 og unnu þeir alls til 16 verðlauna. Jóhann Björn Sigurbjörnsson sigraði í 60m hlaupi í flokki 16-17 ára pilta. Auk þess unnu Skagfirðingar til 12 silfurverðlauna og 3 bronsverðlauna á mótinu.
Verðlaunahafar UMSS:
Jóhann Björn Sigurbjörnsson (16-17): 1. sæti í 60m og 2. sæti í 200m hlaupi.
Fríða Ísabel Friðriksdóttir (14): 2. sæti í 60m, 200m, 60m grindahlaupi og þrístökki.
Ragna Vigdís Vésteinsdóttir (15): 2. sæti í 60m, 60m grindahlaupi og hástökki.
Ari Óskar Víkingsson (11): 2. sæti í 60m hlaupi.
Berglind Gunnarsdóttir (11): 2. sæti í kúluvarpi.
Sæþór Már Hinriksson (12): 2. sæti í þrístökki.
Vala Rún Stefánsdóttir (13): 2. sæti í kúluvarpi.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir (14): 3. sæti í 60m grindahlaupi og kúluvarpi.
Elínborg Margrét Sigfúsdóttir (13): 3. sæti í 600m hlaupi.
Aðrir keppendur UMSS stóðu sig líka með sóma og voru framarlega í sínum greinum.
Til hamingju keppendur og þjálfarar hjá félögum UMSS.