- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Sumarmót UMSS í frjálsíþróttum var haldið sunnudaginn 12. júlí. Mótið fór fram í blíðskaparveðri og var 21 keppandi skráður til leiks. Keppt var í 100m, 200m og 400m hlaupum, kúluvarpi, spjótkasti, hástökki og langstökki. Keppendur voru frá 12 ára aldri upp í fullorðinsflokka.
Góður
árangur náðist og er þar helst að nefna, að Daníel Þórarinsson UMSS sigraði í öllum hlaupagreinum karla og stórbætti sinn fyrri árangur.
100m hljóp hann á 11,19sek (átti 11,28), 200m á 22,26sek (átti 22,77) og 400 metra á 49,57sek (átti 50,51)..
Þetta mót var
einnig liður í þjálfun starfsfólks í mótahaldi, en UMSS heldur
Meistaramót Íslands 15-22 ára dagana 15.-16. ágúst.
ÚRSLIT !