- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Frjálsíþróttasambandið hefur birt lista yfir íþróttafólkið sem skipar „Afrekshóp FRÍ 15-22 ára 2013“. Alls er 21 einstaklingur í hópnum, 12 stúlkur og 9 piltar, valin á grundvelli lágmarka sem sett hafa verið. Í hópnum er Jóhann Björn Sigurbjörnsson Tindastól, sem valinn er vegna afreka sinna í 100m og 200m hlaupum. Í hópnum eru 6 frá Breiðabliki, 5 frá FH, 4 frá ÍR, 2 frá Ármanni og UFA og 1 frá UMSS og HSK.
Sjá má allan hópinn HÉR !
Unnið er að gerð lágmarka fyrir „Úrvalshóp unglinga FRÍ 2013“ og verður valið í hópinn fljótlega og listinn birtur.