- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 15-22 ára, fer fram á Laugardalsvellinum í Reykjavík helgina 26.- 27. ágúst. Fjórir Skagfirðingar eru meðal 230 keppenda, frá 17 félögum og samböndum, sem keppa á mótinu.
Fréttir af fyrri degi:
Leiðindaveður var í dag, laugardag, mikil rigning og rok, með mótvindi í spretthlaupunum. Setti veðrið svip sinn á mótið og spillti mjög árangri keppenda. Skagfirðingarnir stóðu sig mjög vel og unnu þau öll til verðlauna í dag.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir (18-19) varð í 2. sæti bæði í kúluvarpi og kringlukasti.
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir (20-22) í 2. sæti í hástökki.
Rúnar Ingi Stefánsson (18-19) í 3. sæti í kúluvarpi.
Sveinbjörn Óli Svavarsson (20-22) í 3. sæti í 100m hlaupi.
Skagfirðingarnir hafa nú lokið keppni, en þau eru ekki skráð í keppnisgreinar, sem fram fara á seinni degi mótsins.
Allt um mótið má sjá HÉR !.