- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Strákarnir í 11. flokki undir stjórn Bárðar Eyþórssonar, unnu alla sína leiki í 2. umferð B-riðils Íslandsmótsins, en mótinu var fresta í nóvember vegna veðurs. Strákarnir spiluðu í Smáranum gegn Breiðablik, Fjölni og Hamar/Þór.
Úrslit og stigaskor leikjanna var með þessum hætti:
Tindastóll - Fjölnir 74-32. Viðar 19, Pétur Rúnar 18, Hannes 12, Friðrik 7, Finnbogi 7, Kristinn 4, Haukur 4 og Elvar 3.
Tindastóll - Breiðablik 59-53. Pétur 23, Finnbögi 13, Viðar 9, Kristinn 9, Hannes 4, Haukur 1.
Tindastóll - Hamar/Þór 57-36. Hannes 19, Pétur 14, Haukur 9, Viðar 8, Friðrik 5, Finnbogi 2.
Það er því ljóst að í næstu umferð spila strákarnir í A-riðli og eru þeir staðráðnir í að halda sér þar uppi, en þeir hafa svolítið verið eins og jójó á milli A og B í gegn um tíðina.
Vel gert drengir!