Bikarleikur hjá stúlknaflokki heima á sunnudag

Sameiginlegt lið KFÍ og Tindastóls, tekur á móti Keflvíkingum í bikarkeppni stúlknaflokks í Síkinu á sunnudaginn kl. 14.

Keflavíkurstúlkur eru með sterkt lið en okkar stelpur ætla sér að berjast til síðasta manns. Um að gera fyrir stuðningsmenn að sjá framtíð kvennaboltans hér á Króknum, mæta öflugu liði gestanna.

Leikurinn hefst kl. 14 eins og áður sagði.