22.01.2014
Enn og aftur þeysast strákarnir um þjóðvegi landsina og halda nú suður í smárann í Kópavogi. Ætla þeir þar að etja kappi við fyrrverandi þjálfara og leikmenn Tindastóls. Borce þjálfar Blikanna og leika þeir Pálmi Geir og Halldór "junior" Halldórsson með liði Blika. Má búast við hörkuleik á milli þessara liða og hvetjum við alla að mæta og styðja við bakið á strákunum. Áfram Tindastóll.