Dagskráin riðlast um helgina vegna veðurs

Veðrið setur strik í mótahald KKÍ um helgina, því búið er að fresta móti 8. flokks stúlkna sem halda átti hérna um helgina. Þá hefur mótið hjá 8. flokki drengja sem vera átti á Akureyri á morgun laugardag, verið flutt yfir á sunnudag með öðrum tímasetningum.

Búist er við að mótið hjá 8. stúlkna verði fært til fyrstu helgar í desember, en það á þó eftir að staðfesta það.

Mótið hjá 8. drengja verður flutt fram á sunnudag og er nýtt leikjaplan svona;

11-11-2012 10:00

Tindastóll 8. fl. dr.

Sýnishorn

Ármann 8. fl. dr.

Glerárskóli


11-11-2012 11:00

Tindastóll 8. fl. dr.

Sýnishorn

Fjölnir b 8. fl. dr.


11-11-2012 14:00

Þór Ak. 8. fl. dr.

Sýnishorn

Tindastóll 8. fl. dr.

Glerárskóli

11. flokkur drengja fer ekki suður á morgun, en leikmenn stúlknaflokks sem spila í sameiginlegu liði með KFÍ, fóru suður í morgun.

Athygli er svo vakin á því að á sunnudaginn, verður leikur unglingaflokks Tindastóls og Breiðabliks spilaður fyrir leik sömu liða í Lengjubikarnum.