- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Strákarnir í drengjaflokki hafa tryggt sér annað sætið í sínum riðli Íslandsmótsins og eru því komnir í 8-liða úrslitin. Þau hefjast strax á morgun þriðjudag, þegar Grindvíkingar koma í heimsókn.
Leikurinn verður í Síkinu kl. 19.15 og verður um mjög áhugaverðan leik að ræða, þar sem Grindvíkingar eru með hörkulið og lentu í 3. sæti í hinum riðlinum.
Liðið sem sigrar annað kvöld, ferð í undanúrslit, en þau og úrslitaleikurinn sjálfur, verður spilaður í Njarðvík um næstu helgi, á fyrri úrslitahelgi yngri flokkanna.
Stuðningsmenn eru hvattir til að mæta í Síkið og styðja strákana, því það væri sannarlega magnað að koma þeim í undanúrslitin um næstu helgi!
Frítt er inn að sjálfsögðu, en með því skilyrði að fólk láti vel í sér heyra, hvetji strákana, en láti dómara leiksins um að dæma.