04.01.2014
Körfuknattleiksdeild Tindastóls verður með flösku- og dósasöfnun mánudagskvöldið, 6.janúar. Iðkendur yngri flokkanna munu ganga í hús og eru bæjarbúar beðnir að taka vel á móti þeim. Afrakstur söfnunarinnar rennur til reksturs deildarinnar og að miklu leiti til yngri flokka starfs félagsins. Takk fyrir stuðninginn.
Körfuknattleiksdeild og unglingaráð