Frestað fjölliðamót 8. flokks stúlkna núna um helgina

Frestað fjölliðamót hjá 8. flokki stúlkna verður haldið núna um helgina. Mótið átti að fara fram 10. og 11. nóvember en var frestað vegna veðurs.

Stelpurnar spila í B-riðli og mæta þar liðum Kormáks frá Hvammstanga, Snæfells, Hamars/Þórs Þ. og Njarðvíkur. Leikjaplanið er svona;

01-12-2012 11:00 gegn Kormákur 8. fl. st. - Sauðárkrókur
01-12-2012 14:00 gegn Snæfell 8. fl. st. - Sauðárkrókur
02-12-2012 10:00 gegn Hamar/Þór Þ. 8. fl. st. - Sauðárkrókur
02-12-2012 13:00 @ Njarðvík 8. fl. st. - Sauðárkrókur

Það er um að gera að kíkja í Síkið um  helgina og sjá þessar spræku stúlkur spila. Þetta er mjög efnilegur flokkur og margir framtíðar meistaraflokksleikmenn þarna innanborðs.