- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Yngri flokkar Tindastóls rokka feitt þessa dagana og í kvöld tekur unglingaflokkur karla á móti Haukum í frestuðum leik frá því fyrr í vetur. Strákarnir hafa þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins, en með sigri ná þeir 2. sæti í sínum riðli, sem gefur heimavallarrétt í 8-liða úrslitunum.
Liðin áttust við á dögunum í fyrri leik sínum í Hafnarfirði og þann leik unnu okkar menn sannfærandi 75-44. En það er aldrei á vísan að róa í þessu, því þurfa strákarnir góðan stuðning í kvöld til að tryggja sér 2. sætið sem er afar mikilvægt.
Leikurinn hefst kl. 19.00 í Síkinu.