- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Eins
og undanfarin ár rekur UMFÍ frjálsíþróttaskóla á nokkrum stöðum á landinu í
sumar í samstarfi við FRÍ. Skólinn, sem ætlaður er ungmennum á aldrinum 11 – 18
ára, verður starfræktur á Sauðárkróki, Laugum í Reykjadal, Egilsstöðum,
Borgarnesi og Selfossi, á mismunandi tímum í sumar.
Á Sauðárkróki
verður skólinn 22. – 26. júlí undir stjórn Árna Geirs Sigurbjörnssonar.
Nánari
upplýsingar og skráning er á vefsíðu UMFÍ.