16.03.2013
Nú skal tjalda öllu til í Síkinu annað kvöld, því með stuðningi FISK Seafood og KS, verður öllum boðið á stórleik Tindastóls og Grindavíkur!!!
Leikurinn skiptir nákvæmlega ÖLLU máli, því liðið getur fallið, tryggt sæti sitt í deildinni, eða komist í úrslitakeppnina. En hvernig sem spáð er og spekúlerað, þá verður leikurinn að vinnast!!
FISK Seafood og KS ætla að bjóða á leikinn svo nú er engin afsökun fyrir því að mæta ekki í Síkið og styðja strákana til sigurs!!!