Góð ferð 8.flokks kvenna í Hólminn

Áttundi flokkur kvenna gerði góða ferð til Stykkishólms í dag og unnu alla sína leiki í B-riðli. Í fyrsta leik unnu Tindastólsstelpurnar Fjölni 32-29 í framlengingu þar sem að Berglind Ósk kláraði leikinn með þriggja stiga körfu. Næst unnu stelpurnar ÍR 33-18 og að lokum heimamenn í Snæfelli 32-23. Þetta þýðir að stelpurnar eru komnar upp í A-riðil.