- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Á þriðja og síðasta degi Gautaborgarleikanna varð Jóhann Björn Sigurbjörnsson í 3. sæti í 200m hlaupi 18-19 ára. Keppendur í hlaupinu voru 62 og var þeim skipt í riðla eftir uppgefnum tímum við skráningu í mótið. Ekki var hlaupið sérstakt úrslitahlaup, heldur réðu tímar úr riðlum endanlegri röð keppenda. Jóhann Björn naut því ekki góðra bætinga sinna að undanförnu og hljóp í 2. riðli, sem hann vann mjög örugglega á 21,60sek. Tveir norskir hlauparar náðu betri tímum í 1. riðli, 21,28 og 21,59, svo Jóhann Björn hafnaði í 3. sæti. Kolbeinn Höður Gunnarsson UFA, sem hljóp í 1. riðli, endaði í 4. sæti hlaupsins á 21,61sek. Það hefði verið gaman að sjá þessa fjóra kappa í sama riðli !
Ísak Óli Traustason komst í úrslit í 110m grindahlaupi í flokki 18-19 og endaði í 7. sæti á 15,53sek, en hann náði sínum besta tíma, 15,28sek, í undanrásunum.
Hinir ungu og efnilegu unglingar í skagfirska hópnum náðu mjög góðum árangri, margir bættu sinn árangur og eru í mikilli framför. Öll úrslit mótsins má sjá HÉR !