- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Gautaborgarleikarnir í frjálsíþróttum, „Världsungdomsspelen 2014“, standa yfir dagana 27.-29. júní á Ullevi-leikvanginum í Gautaborg.
Þrátt fyrir nafnið, er keppt í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Þetta mót er eitt hið fjölmennasta sem haldið er í Evrópu ár hvert. Nú eru þátttakendur alls nálægt 4000 talsins, frá 20 löndum, og koma um 40% frá öðrum löndum en Svíþjóð. Frá Íslandi eru 110 keppendur, þar af 30 Skagfirðingar.
Á fyrsta degi mótsins, náði Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir Tindastól/UMSS glæsilegum árangri í hástökki, þegar hún stökk 1,67m sem er nýtt skagfirskt héraðsmet í kvennaflokki. Gamla metið áttu þær saman systurnar Vilborg Þórunn og Áslaug Jóhannsdætur, en það var 1,66m frá 2001 og 2002. Þóranna Ósk keppti í flokki 18-19 ára stúlkna og varð þar í 5. sæti, en í 3. sæti þeirra sem sem eru 18 ára.
Hér má sjá frekari upplýsingar og öll ÚRSLIT !