- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Meistaramót Íslands í
frjálsíþróttum, fyrir 15-22 ára, var haldið í Kópavogi
helgina 10.-11. ágúst.
Skráðir
keppendur voru 202, frá 16 félögum og samböndum, í þeim hópi voru 15 frá UMSS.
Skagfirðingarnir
lönduðu 6 Íslandsmeistaratitlum og unnu alls til 22 verðlauna, 6 gull, 11
silfur og 5 brons.
Í
samanlagðri stigakeppni mótsins sigraði ÍR með 469 stig og Breiðablik varð
í 2. sæti með 352. Mjög hörð keppni varð um næstu fjögur sæti,
en í 3. sæti varð HSK/Selfoss með 181, 4. sæti UFA 180 stig, 5. sæti FH 180
stig og í 6. sæti, af 16 liðum, varð UMSS með162 stig.
Í
einstökum aldursflokkum varð Stúlknalið UMSS 16-17 ára í 2. sæti á eftir ÍR,
Stúlknalið UMSS 15 ára í 3. sæti á eftir Bbliki og UFA og Piltalið UMSS 18-19
ára í 3. sæti eftir Bbliki og ÍR.
Verðlaunahafar UMSS á MÍ
15-22 ára 2013:
Guðjón
Ingimundarson (20-22): Ísl.meistari í 110m og 400m
grindahlaupum.
Fríða
Ísabel Friðriksdóttir (15):
Ísl.meistari í þrístökki, 2. sæti í 100m, 200m og 400m hlaupum, 80m og
300m grindahlaupum og langstökki.
Ísak
Óli Traustason (18-19):
Ísl.meistari í 110m grindahlaupi, 2. sæti í hástökki og 3. sæti í langstökki.
Þóranna
Ósk Sigurjónsdóttir (16-17): Ísl.meistari í kringlukasti og 3. sæti í
hástökki.
Daníel
Þórarinsson (18-19):
Ísl.meistari í 400m hlaupi og 3. sæti í 100m hlaupi.
Haukur
Ingvi Marinósson (15):
2. sæti í kringlukasti og 3. sæti í sleggjukasti.
Ragnar
Yngvi Marinósson (15):
2. sæti í 1500m hlaupi.
Sveinbjörn Óli Svavarsson (16-17): 2. sæti í 400m grindahlaupi.
Þorgerður Bettína Friðriksdóttir
(16-17): 2. sæti í 400m
hlaupi.
Stúlknasveit UMSS (16-17): 3. sæti í 4x100m boðhlaupi. Sveitina skipuðu Fríða Ísabel Friðriksdóttir, Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, Ragna Vigdís Vésteinsdóttir og Þorgerður Bettína Friðriksdóttir.
Glæsilegur
árangur hjá þessu unga íþróttafólki.
Til
hamingju !