- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 15-22 ára, fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík 11.-12. janúar. Um 300 keppendur mættu til leiks frá 16 félögum og samböndum.
Á mótinu var keppt í fjórum aldursflokkum beggja kynja, 15, 16-17, 18-19 og 20-22 ára.
ÍR-ingar voru langfjölmennastir með 53 keppendur, FH með 28, Breiðablik 23, UFA 17 og UMSS 16, önnur lið með færri keppendur.
Í heildarstigakeppni mótsins sigruðu ÍR-ingar líka með yfirburðum, en lið UMSS varð í 5. sæti, og piltaliðið 18-19 ára varð í 3. sæti í sínum aldursflokki.
Skagfirðingar unnu einn Íslandsmeistaratitil, þegar Guðjón Ingimundarson sigraði í 60m grindahlaupi 20-22 ára.
Jóhann Björn Sigurbjörnsson, nýkrýndur ”Íþróttamaður Skagafjarðar”, stóð sig frábærlega, bætti sinn fyrri árangur bæði í 60m og 200m hlaupum, og setti enn eitt héraðsmetið í 200m hlaupi innanhúss.
Verðlaunahafar UMSS á MÍ 15-22 ára ih. 2014:
Guðjón Ingimundarson (20-22): Íslandsmeistari í 60m grindahlaupi.
Jóhann Björn Sigurbjörnsson (18-19): 2. sæti í 60m og 200m hlaupum.
Fríða Ísabel Friðriksdóttir (16-17): 2. sæti í 60m grindahlaupi og þrístökki.
Daníel Þórarinsson (20-22): 2. sæti í 200m og 3. sæti í 60m og 400m hlaupum.
Ísak Óli Traustason (18-19): 2. sæti í 60m grind. og 3. sæti í langstökki.
Vésteinn Karl Vésteinsson (15): 2. sæti í langstökki og 3. sæti í kúluvarpi
Brynjólfur Birkir Þrastarson (18-19): 2 sæti í þrístökki.
Sveinbjörn Óli Svavarsson (16-17): 3. sæti í 60m hlaupi.