- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Meistaraflokkur frjálsíþróttafólks UMFT á Sauðárkróki undirbýr nú æfingaferð til Bandaríkjanna í vor. Um er að ræða níu manna hóp, ásamt þjálfara. Þessi hópur stóð sig frábærlega á vellinum síðasta sumar, en vill koma enn betur undirbúinn til keppni á næsta sumri.
Á veturna æfa þessir krakkar í Íþróttahúsinu og Reiðhöllinni hér heima, aðstaða sem jafnast ekki alveg á við aðstöðuna á suðvesturhorninu, en samt hafa þau ekki látið það hindra sig í því að ná frábærum árangri og eru í hópi þeirra bestu á landinu.
Hjálpum okkar frábæra frjálsíþróttafólki,
með því að kaupa happdrættismiða, þegar þau heimsækja okkur næstu daga.
Glæsilegir vinningar !