04.11.2012
Tindastóll hefur forystu í sínum riðli í Lengjubikarnum og í kvöld mæta þeir liði Fjölnis í Grafarvoginum. Strákarnir unnu Stjörnuna í mjög góðum leik um síðustu helgi og núna þarf að láta kné fylgja kviði.
Lengjubikarinn hefur einhvern veginn verið keppni Tindstóls þetta haustið, enn á eftir að landa sigri í deildinni en í þessari bikarkeppni hefur liðið leikið sína bestu leiki og eru nú á toppi síns riðils.
Leikurinn hefst kl. 19.15 í Dalhúsum. Stuðningsmenn ætla að hittast á Mælifelli og horfa á leikinn saman, en sem fyrr renna 25% af veitingasölu kvöldins í sjóði körfuknattleiksdeildar.