- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Lengjubikarinn
Tindastóll –
Magni 2-0
1 – 0 Fannar Freyr Gíslason (33´)
2 – 0 Kristinn Snjólfsson (41´)
Laugardaginn
29. mars fór fram leikur Tindastóls og Magna, en leiknum var frestað um síðustu
helgi vegna veðurs og ófærðar.
Byrjunarlið Tindastóls
í þessum leik var á þá leið að í markinu var Stefán Árna, varnarlínuna skipuðu
Arnar Skúli, Loftur Páll, Bjarki Már og Bjarni Smári. Á miðjunni voru Fannar Örn, Benjamín og
Kristinn. Á köntunum voru Óskar Smári,
Ívar Guðlaugur og fremstur var Fannar Freyr.
Leikmenn
Tindastóls mættu ákveðnir til leiks og voru sterkara liðið í leiknum frá
upphafi. Strax í fyrstu sókn leiksins
fékk Benni boltann og tók hann á rás með hann og brutu Magnamenn á honum á
vítateigslínunni. Fannar Örn tók
aukaspyrnuna og hamraði boltanum í innanverða stöngina en inn vildi boltinn
ekki. Þrátt fyrir flottar sóknir og
nokkur álitileg færi kom fyrsta mark leiksins ekki fyrr en á 33. mínútu. En þá kom flott fyrirgjöf frá hægri og eftir
smá þvögu þá sneri Fannar Freyr varnarmann af sér og skoraði af miklu öryggi.
Annað mark
leiksins kom eftir hornspyrnu. En þá
gekk Magnamönnum illa að hreinsa boltann frá markinu og barst boltinn út í
teiginn til Kristins sem skaut boltanum í varnarmann og lak boltinn í netið. Markið var skráð sem sjálfsmark en Kristinn
segist hafa ætlað að gera þetta og því skráum við markið réttilega á hann. Þannig var staðan í hálfleik 2 – 0 fyrir
Tindastóli.
Seinni
hálfleikurinn var einnig mjög vel leikinn af Tindastóli, þar sem liðið hélt
boltanum ágætlega og náði mörgum flottum sóknum. Það var helst tréverkið sem kom í veg fyrir
að mörkin yrðu fleiri í leiknum. Ívar
átti tvö skot sem höfnuðu í tréverkinu, annað fór í innanverða stöngina en hitt
í slánna úr aukaspyrnu. Arnar Skúli átti
mjög flotta rispu upp allan völlinn og endaði hana með því að þruma boltanum í
innanverða stöngina. Svo átti Óskar
Smári gott skot sem hafnaði í slánni. En
þrátt fyrir margar flottar sóknir í seinni hálfleik þá var ekkert mark skorað.
Leikurinn
var á heildina litið vel leikinn og sanngjarn 2 – 0 sigur í höfn.
Skiptingar:
Fannar Freyr út – Konni inn á 44. mín
Kristinn út – Kári inn á 46. mín
Bjarki Már út – Guðni inn 61. mín
Ívar út – Hólmar Daði inn 76. mín
Bjarni Smári út – Ágúst inn á 79. Mín
Æfingarleikur
Á sunnudeginum
30. mars var leikinn æfingaleikur gegn varaliði Þórs. Leikið var á KA-gervigrasinu og þvílíkt
blíðskapa veður.
En í upphafi
leiks var eins og leikmenn Tindastóls væru ekki vaknaði því Þór komst í 1 -0
fljótlega með marki úr aukaspyrnu. Og
áður en langt um leið þá skoruðu Þórsarar annað mark úr skyndisókn. En sem betur fer þá vöknuðu leikmenn
Tindastóls og fóru að leika betur. En
staðan var 2 – 0 í hálfleik.
Í hálfleik
var farið aðeins yfir málin og voru leikmenn ákveðnir í að gera betur í seinni
hálfleik. Enda var það eins og nýtt lið
mætti leiks í seinni hálfleik. Voru
Tindastóls leikmenn mun ákveðnari og snarpari í öllum sínum aðgerðum.
Um miðjan
hálfleikinn átti Tindastóll hornspyrnu og náðu Þórsarar að ekki hreinsa boltann
nógu vel frá marki og barst boltinn út á hægri kant á Guðna. Guðni kom þá með hnitmiðaða sendingu beint á
kollinn á Bjarka Má, sem stangaði boltann í bláhornið. Staðan því orðin 2 – 1.
Fáeinum
mínútum síðar þá tekur Konni aukaspyrnu á miðjunni og sendir boltann inn í vítateig
Þórsarana. Þar sem Bjarki Már nær að
skalla boltann inn í teiginn þar sem Hólmar Daði kemur á ferðinni og klárar
færið vel. Staðan orðin því jöfn 2 – 2.
Í kringum
75. mínútu þá ná Þórsararnir forustunni aftur og eftir það mark var eins og
bensínið væri á þrotum hjá Tindastólsmönnum því að Þór bætti svo við þremur
mörkum það sem eftir lifði.
Tindastóls
liðið spilaði hérna sinn annan leik á tveimur dögum og vorum margir flottir
punktar í leiknum, þrátt fyrir ósigur.
Þeir
leikmenn sem tóku þátt í leiknum voru:
Stefán Árna, Arnar Skúli, Bjarki Már, Kári, Ágúst, Konni, Guðni, Stinni,
Hólmar, Ívar, Benni, Óskar og Bjarni Smári.