- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Meistaramót Íslands í
frjálsíþróttum fyrir 11 – 14 ára, fór fram í Hafnarfirði
helgina 22. – 23. júní.
Keppendur
voru 240 frá 19 félögum og samböndum.
Frá UMSS voru 6 keppendur, sem stóðu sig mjög vel, og unnu þrenn
verðlaun á mótinu.
Verðlaunahafar
UMSS:
Berglind
Gunnarsdóttir (12): 2. sæti í kúluvarpi.
Guðný
Rúna Vésteinsdóttir (11): 3. sæti í kúluvarpi.
Vala
Rún Stefánsdóttir (14): 3. sæti í spjótkasti.
Í samanlagðri stigakeppni mótsins sigraði lið HSK/Selfoss með 682 stig, ÍR varð í 2. sæti með 664 stig og FH í 3. sæti með 581. Lið UMSS varð í 11. sæti með 61,5 stig.
Öll úrslit má sjá HÉR !