- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Unglingaflokkur karla,
undir stjórn Bárðar og Kára Mar., vann öruggan sigur á liði Stjörnunnar 99-70 í
sínum fyrsta leik á tímabilinu. Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri
hálfleik en lið Tindastóls var alltaf skrefinu á undan. Leiddu 18-15 eftir
fyrsta leikhluta og 40-37 í hálfleik. Í þriðja leikhluta bættu strákarnir heldur
í og leiddu 69-55 eftir þriðja leikhluta. Þessa forystu lét Tindastóll aldrei
af hendig og unnu að lokum 99-70 eins og áður segir.
Stig Tindastóls: Ingvi 23,
Pétur 21, Páll 17, Friðrik 15, Þröstur 6, Hannes 6, Sigurður Páll 6, Finnbogi 3
og Viðar 2. Að auki spiluðu Arnar, Árni Freyr og Friðrik Hrafn. Hjá Stjörnunni
var Sæmundur Valdimars langstigahæstur með 32 stig.