Strákarnir halda á skagann á morgun

Strákarnir eiga eftir 4 leiki í deildinni og eru með 4 stiga forskot á nágranna okkar úr Þór ak. Eftir leikinn á morgun eigum við eftir að mæta Vængjum júpiters hér á heimavelli 28 febrúar. Eftir það verður haldið yfir öxnadalsheiðina og spilað risagrannaslag við Þór er sá leikur 7 febrúar. Svo koma Hreinsi og hattar menn í heimsókn í síkið í síðasta leik tímabilsins þann 14 febrúar. Nú er um að gera að mæta vel á leikina sem eftir eru og hvetja strákana til sigurs og ljúka tímabilinu með sæmnd. Leikurinn á morgun  verður ekki sýndur beint á netinu af skaganum og er um að gera fyrir skagfirðinga á höfuðborgarsvæðinu að kíkka á skagann þar sem leikurinn hefst kl 19:15. Áfram Tindastóll.