- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Sumaræfingarnar í körfubolta eru að fara af stað aftur
eftir tveggja vikna frí. Verða þær áfram í umsjón Helga Freys Margeirssonar.
Verða æfingarnar á mánudögum kl. 16:30-18:00 og á miðvikudögum kl. 17:30-19:00.
Fyrsta æfingin í júlí verður miðvikudaginn 2.
Framundan er unglingalandsmót á Sauðárkróki um
verslunarmannahelgina og fyrir þá sem ætla að keppa í körfubolta þar er um að
gera að nýta sér þessar æfingar. Eins er gott að nýta æfingar á sumrin til að æfa boltameðferð og skot.