30.01.2014
Það má búast við hörku leik við sunnlensku piltanna í FSu á föstudagskvöld. Þetta er vel mannað og skipulagt lið sem er ekkert auðvelt að eiga við. Lentum við í miklum slag við þá í fyrri umferðinni þar sem Proctor hélt okkur á floti með 48 stiga leik í Iðu á Selfossi, leik sem við unnum með 11 stigum. Það er alveg á tæru að Tindastóll þarf að eiga sinn besta leik og framlag frá sem flestum til að leggja sprækt lið FSu af velli. Við skulum nú fjölmenna í Síkið og koma raddböndunum í form fyrir bikarslaginn við ÍR á mánudagskvöld. Áfram Tindastóll.