Tindastóll-Þór Ak

Næstkomandi föstudag fá heimamenn í Tindastóli Þór Ak í heimsókn, búast má við hörkuleik er þessi tvö topplið mætast. Tindastólsmenn sitja einir á toppi fyrstudeildar ósigraðir eftir 7 umferðir. Þórsarar töpuðu sínum fyrsta leik í vetur í síðustu umferð gegn Hetti á sínum heimavelli. Er það á tæru að boðið verður til skemmtunar á heimsmælikvarða er þessi stórlið norðurlands mætast. Hvetjum alla að mæta og láta vel í sér heyra og styðja vel við bakið á strákunum.... Áfram Tindastóll. 
ps logo fengið lánað af feykir.is.