Tindastóll vann gríðargóðan sigur á Stjörnunni í kvöld, 109 - 94

Leikurinn hófst með látum og liðin byrjuðu strax að setja stig á töfluna og var það það sem koma skyldi í leiknum. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og virkilega góðri hittni hjá báðum liðum, Stjarnan hitti 65% úr 2ja stiga skotum og Tindastóll 60%. Tindastóll var hins vegar með 16 ofaní  úr 32 skotum fyrir utan 3ja stiga línuna og þar lá að miklu leyti munurinn á liðunum í kvöld þar sem Stjarnan var með 9 af 23 fyrir utan línuna.

Hjá gestunum var Justin Shouse aðal maðurinn eins og svo oft áður með 34 stig auk 7 stoðsendinga. Einnig stóð Brian Mills sig ágætlega á meðan hans naut við en hann var í villuvandræðum í kvöld rétt eins og Helgi Rafn hjá Tindastól en þeir luku leiknum í sameiningu þegar þeir fengu báðir sínar fimmtu villu þegar þeir stigu léttan dans í teignum sem endaði með því að þeir tóku sniðglímu á lofti gegn hvorum öðrum sem endaði á því að dómarinn kallaði yppon og báðir þurftu að setjast á bekkinn, stórgott atriði þó svo að hvorugur leikmaðurinn skyldi af hverju var dæmt á þá.
Hjá Tindastól voru margir leikmenn að skila virkilega góðum leik í kvöld, það voru til að mynda sjö leikmenn sem náðu tveggja stafa tölu í stigum. George Valentine virðist allur vera að koma til og átti prýðisleik með 22 stig og 8 fráköst. Helgi Freyr er búinn að vera heitur í viku núna og er farinn að minna á drenginn sem var borinn á kóngastól þegar hann var í menntaskóla í Bandaríkjunum og vonandi að skothöndin hjá honum sé ekkert að fara að kólna. Svabbi sýndi gamalkunna takta og skoraði 18 stig á aðeins 16 mínútum. Þröstur Leó virðist vera smitberi, að því leitinu til að hann smitar samherja sína af eldmóð og eljusemi. Svo verður maður einnig að minnast á þátt Sigtryggs Arnars Björnssonar, eða Arnar eins og hann er kallaður. Innkoma hans í þriðja leikhluta varð til þess að leiðir fóru að skilja á milli liðanna, hann náði að stýra liðinu ágætlega og var góður í að finna opna menn enda endaði hann með 7 stoðsendingar auk 11 stiga.

Tindastóll er farið að minna óþægilega mikið á stórlið Liverpool í ensku knattspyrnunni, bestir í deildabikarnum en geta svo ekkert í deildinni.
Það er því vonandi að lið Tindastól nái að yfirfæra góðan leik í Lengjubikarnum yfir á Domino´s deildina svo að þessari samlíkingu geti lokið sem allra allra fyrst.