Tindastólssigur í Smáranum

Tindastóll heimsótti Breiðablik í Lengjubikarnum í gærkvöldi og fór með nokkuð öruggan sigur af hólmi 76-59.

Blikarnir voru baráttuglaðir í byrjun og leiddu 15-14 eftir fyrsta leikhlutann, en í hálfleik var staðan 32-30 fyrir Tindastól.

Strákarnir okkar komu svo hressari til síðari hálfleiks og unnu að lokum sigur 76-59.

Þar með hefur Tindastóll unnið báða leiki sína í Lengjubikarnum hingað til, en næsti leikur í þeirri ágætu keppni er gegn Stjörnunni heima sunnudaginn 28. október. En það má geta þess að næsti leikur strákanna í deildinni verður úti gegn Fjölni á fimmtudaginn kemur.

Tölfræði leiksins.

Myndasafn frá leiknum og þar má sjá marga góðkunningja okkar og sveitunga.