- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Yfirlýsing frá stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls
Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls hefur undanfarna mánuði velt fyrir sér framtíð m.fl. karla hjá félaginu. Tindastóll hefur leikið í 1.deild í tvö ár og haldið sæti sínu með sóma. Þetta hefur verið gert með öflugum heimamönnum og síðan erlendum leikmönnum og lánsmönnum liða í Pepsi deild. Hinsvegar metum við það svo að nær ógerlegt er að halda liði úti í 1.deild karla á landsbyggðinni með þessum hætti. Við höfum rekið deildina eins hóflega og nokkur kostur er, til þess eins að vera samkeppnishæfir í 1.deild og gera okkar góðu heimamönnum kleift að spila fótbolta og dvelja í heimabyggð.
Hinsvegar stöndum við frammi fyrir ýmsum staðreyndum sem ekki er hægt
að horfa framhjá. Aðstöðuleysi yfir
vetrarmánuðina á Sauðárkróki, íbúafækkun á svæðinu og þá sérstaklega ungs
afreksfólks og síðan ferðalög og ferðakostnaður bæði í leiki og á æfingar. Þetta hefur sett okkur í þrönga stöðu hvað
fjármál varðar og í ljósi þessa alls munum við fyrr en seinna taka ákvörðun um
næstu skref, skynsamlega ákvörðun,
félaginu okkar til heilla.
F.h. knattspyrnudeildar Tindastóls
Ómar Bragi Stefánsson, formaður