- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Vetrarstarf Júdódeildar Tindastóls hefst 19. september næstkomandi samkvæmt stundaskrá í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Æfingaaðstaða Júdódeildar Tindastóls hefur nú flust frá íþróttasal gamla barnaskólans við Freyjugötu í íþróttahúsið á Sauðárkróki. Æfingar hefjast þar mánudaginn 19. september samkvæmt stundaskrá:
* Fellur niður þegar körfuboltaleikir fara fram. |
||
Tími | Aldurshópur | |
Mánudagur | 17:40 -- 18:40 | 2011 og eldri |
Þriðjudagur | 20:20 -- 21:30 | 2006 og eldri |
Þriðjudagur | 21:30 -- 22:50 | 2001 og eldri |
Miðvikudagur | 16:10 -- 17:40 | 2011 og eldri |
Miðvikudagur | 17:40 -- 18:40 | 2006 og eldri |
Fimmtudagur | 20:20 -- 21:30 | 2006 og eldri* |
Fimmtudagur | 21:30 -- 22:50 | 2001 og eldri |
Skráningar sendist á judo@tindastoll.is með upplýsingar um nafn og aldur og eru nýir iðkendur velkomnir hvenær sem er. Hægt að fá frekari upplýsingar hjá Helenu í síma 864-0550 og hjá Einari Erni í síma 857-3008.
Iðkendur hafa kost á því að leigja búninga á meðan birgðir endast en einnig verður hægt að leggja inn pöntun á búningum til kaups eftir áramót.
Þjálfari verður Einar Örn Hreinsson 1. dan. Til afleysinga verða Magnús Freyr Gíslason 1. kyu, Jakob Smári Pálmason 2. kyu og Magnús Hafsteinn Hinriksson 4. kyu.