Chris og Pétur í liði fyrri umferðarinnar

Pétur Rúnar og Chris Caird eru í liði fyrri umferðar Domino's deildarinnar sem tilkynnt var um í körfuboltakvöldi í gær.

Pétur hefur leitt lið okkar manna undanfarin ár og er einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Chris kom hins vegar inn í liðið í haust frá FSu og hefur verið mikill happafengur fyrir okkur.


Frábær viðurkenning fyrir frábæra leikmenn. Við óskum strákunum til hamingju og erum stolt af þeim!