- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar Tindastóls var haldinn 26. apríl. Formannaskipti urðu á fundinum, Sigurjón Leifsson, sem gegnt hafði formennsku frá 2010, baðst undan endurkjöri, en í hans stað var Margrét Arnardóttir kjörin formaður og er hún boðin velkomin í embættið. Sigurjóni eru þökkuð góð störf fyrir deildina. Þær Kolbrún Þórðardóttir og Thelma Knútsdóttir voru einnig kjörnar nú í stjórn deildarinnar. Guðrún Ottósdóttir og Hafdís Ólafsdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa, og eru þeim færðar þakkir fyrir góð störf.