Æfingaleikur við Skallagrím í kvöld

Meistaraflokkur karla tekur á móti úrvalsdeildarliði Skallagríms úr Borgarnesi í æfingaleik í kvöld kl. 18.15 í Síkinu. Frítt verður inn á leikinn.

Bæði lið búa sig nú af kappi undir keppni í Domino's deildinni í vetur, en Skallarnir unnu sér þar keppnisrétt eftir úrslitakeppni 1. deildar í vor.

Báðir nýju erlendu leikmenn Tindastóls verða með í leiknum og tilvalið fyrir stuðningsmenn að sjá hvað þeir hafa fram að færa.