- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Það verður nóg um að vera í íþróttahúsinu á föstudag og laugardag. Þá verður haldið æfingamót með þátttöku Tindastóls, 1. deildarliðs Hattar frá Egilsstöðum og KR.
Dagskráin hefst með leik unglingaflokks Tindastóls og Hattar kl. 19.15 á föstudag og strax á eftir, eða kl. 21, munu meistaraflokkar Tindastóls og KR etja kappi.
Á laugardag kl. 12 munu KR og Höttur spila, Tindastóll og KR kl. 14 og Höttur og Tindastóll kl. 16.
Brjálað að gera og um að gera að láta sjá sig og skoða liðin fyrir komandi leiktíð.
Vegna mótsins færast laugardagsæfingar niður í litla salinn. Sjá nánar HÉR.
Þá verður körfuboltaskólinn á sínum stað á sunnudag.