Æfingar í körfubolta hjá Minniboltaflokkunum

Æfingar í körfubolta hefjast hjá krökkum í 3.-6.bekk á morgun fimmtudaginn 19.september. Æfingarnar verða í salnum í gamla Barnaskólanum við Freyjugötu. Á morgun mæta stelpurnar í 3.-6. bekk kl. 15.00-16.00 en strákarnir í 3.-5. bekk kl. 16.00-17.00. Strákarnir í 6. bekk æfa með 7. bekk og þær æfingar eru hafnar. Þjálfari hjá stelpunum verður Erna Kristjánsdóttir, en hjá strákunum Páll Bárðarson.
Æfingataflan tekur svo gildi í næstu viku. Vonast er til að hún þurfi ekki að taka breytingum en hún verður aðgengileg á vef körfuboltadeild Tindastóls undir yngri flokkar - Æfingatafla.

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hvetur alla krakka til að mæta og vera með í körfunni í vetur.