- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Nú eru fjölliðamótin komin á fullt og um síðustu helgi tóku fjögur lið frá Tindastóli þátt í fyrstu umferð þeirra. Nú er komið að 10. flokki karla, 9. flokki stúlkna og 7. flokki karla auk þess sem unglingaflokkur karla spilar á föstudagskvöldið.
10. flokkur drengja spilar hér heima í B-riðli undir stjórn Odds Benediktssonar. Leikjaniðurröðun þeirra er svona;
20-10-2012 13:00 | @ Stjarnan 10. fl. dr. | - | Sauðárkrókur |
20-10-2012 15:30 | @ ÍR 10. fl. dr. | - | Sauðárkrókur |
21-10-2012 09:00 | @ Breiðablik 10. fl. dr. | - | Sauðárkrókur |
21-10-2012 11:30 | @ Keflavík 10. fl. dr. | - | Sauðárkrókur |
9. flokkur stúlkna leggur land undir fót og tekur þátt í A-riðilsmóti á Flúðum. Þjálfari stúlknanna er Karl Jónsson. Leikjaplanið er svona;
Laugardagur
14.30 Njarðvík - Tindastóll
17.00 Keflavík - Tindastóll
Sunnudagur
gegn Hrunamenn 9. fl. st. |
|||
7. flokkur drengja keppir svo í Kennaraháskólanum á laugardaginn í D-riðli. Þeir eru nýtt lið í Íslandsmóti og hefja því leik í neðsta riðlinum. Þjálfari strákanna er Hreinn Gunnar Birgisson. Leikjaplanið er svona;
20-10-2012 12:00 | @ Ármann 7. fl. dr. | - | Kennaraháskólinn |
20-10-2012 14:00 | @ Höttur 7. fl. dr. | - | Kennaraháskólinn |
20-10-2012 16:00 | @ Sindri 7. fl. dr. | - | Kennaraháskólinn |
Þá spilar unglingaflokkur karla sinn annan leik í Íslandsmótinu gegn KFÍ á föstudagskvöldið, strax á eftir leik sömu liða í Domino's deildinni.
Vegna fjölliðamóts 10. flokks, verða helgaræfingar færða niður í barnaskólasal og kennslustund í körfuboltaskólanum fellur niður.