FRÍTT verður á allar æfingar fyrir 10 - 14 ára iðkendur sumarið 2020.
Sumaræfingar hefjast 2. júní og lýkur 30. júlí
- Í frjálsum íþróttum er lögð áhersla á að þjálfa bæði snerpu og úthald.
- Frjálsar geta því hentað vel með öðrum íþróttum.
- Lagt er upp með fjölbreyttar æfingar sem veita góðan grunn fyrir frekari frjálsíþróttaþjálfun eða iðkun annarra íþrótta.
- Æfðar verða markvisst einstakar greinar innan frjálsra íþrótta, þ.e. hlaup, köst og stökk.
- Óskað er eftir því að forráðamenn skrái sína iðkendur.
- Skráningar fara fram rafrænt https://umss.felog.is
- Nánari upplýsingar á http://www.tindastoll.is/frjalsar
Æfingar eru á Sauðárkróksvelli - besta frjálsíþróttavelli Íslands
Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:00 - 18:30
Þjálfari: Friðrik Hrafn Jóhannsson