- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Körfuknattleiksdeild Tindastóls fékk endurnýjun á viðurkenningu sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ í hálfleik leiks meistaraflokks karla við Grindavík, í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki fimmtudaginn 8. nóvember síðastliðinn. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti formanni deildarinnar Ingólfi Jóni Geirssyni viðurkenninguna.