- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Meistaramót Íslands í öldungaflokkum frjálsíþrótta fór fram á Akureyri helgina 17.-18. ágúst. Á mótinu skal keppt í 5 ára aldursflokkum kvenna og karla, 30 ára og eldri. Feðgarnir Karl Lúðvíksson og Theodór Karlsson UMSS voru meðal keppenda og stóðu sig með glæsibrag.
Karl vann til 4 gullverðlauna í flokki 65-69 ára, fyrir 100m hlaup, hástökk, langstökk og kringlukast.
Theodór vann til 5 gullverðlauna í flokki 40-44 ára, fyrir 100m hlaup, hástökk, langstökk, stangarstökk og spjótkast.
Úrslit í einstökum greinum má sjá HÉR !
Til hamingju fræknu feðgar !