- Forsíða
- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Í gær áttust við í Lengjubikarnum fyrstudeildarliðið Tindastóll og
úrvalsdeildarliðið Valur úr Reykjavík í Lengjubikarnum í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki. Stólarnir komu vel stemmdir til leiks og byrjuðu af krafti en
eftir þrjár mínútur var staðan orðin 16-2 þeim í vil. Valsarar stigu þá upp og
reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn en gátu best 25 – 17 í fyrsta
leikhluta sem endaði 32 – 18 fyrir heimamenn.
Í þriðja leikhluta settu Stólarnir í fluggírinn og stungu Valsarana af með
góðum leik meðan lítið gekk hjá sunnanmönnum staðan eftir þriðja leikhluta 80 –
55.